Reykjavík og Akureyri — veðursamanburður
Samanburður á veðrinu í Reykjavík og á Akureyri á árunum 2010–2025, byggt á gögnum frá Veðurstofu Íslands (www.vedur.is).
Bakgrunnur
Íslendingar vita að veðrinu er misskipt eftir landshlutum. Íbúar á Austur- og Norðurlandi tala gjarnan um hversu mikið rignir á höfuðborgarsvæðinu og á sumrin heyrast reglulega fréttir af hitabylgjum fyrir norðan og austan á meðan að rigningin steypist niður á höfuðborgarsvæðinu.
Í þessari færslu ber ég saman veðurtölur frá Reykjavík og Akureyri á árunum 2010–2025 og ber þær saman á fjórum sviðum: hita, úrkomu, vindi og sólskinsstundum. Því miður eru þessi gögn ekki aðgengileg fyrir Austurland en það hefði verið gaman að sjá sömu tölur fyrir Egilsstaði, sérstaklega hitastig og sólksinsstundir á sumrin og bera þær tölur saman við höfuðborgina.
Hiti
Meðalhiti eftir mánuðum
Meðalárshiti í Reykjavík á tímabilinu var 5,38°C, en á Akureyri 4,42°C. Reykjavík er því að meðaltali um einni gráðu hlýrri, og það er hlýrra í Reykjavík yfir veturinn en meðalhitastigið er jafnara um sumarið.
Meðallágmarks- og meðalhámarkshiti eftir mánuðum
Meðaltalshiti fyrir heilan mánuð segir ekki alla söguna og það getur verið áhugavert að bera saman meðallágmarks- og meðalhámarkshiti eftir mánuðum. Hér sést að meðalhámarkshitinn er hærri yfir sumarið á Akureyri en í Reykjavík, sem virðist renna stoðum undir þá kenningu að það er hlýrra á sumrin fyrir norðan en fyrir sunnan. Hinsvegar sést líka að veturinn er kaldari norður á Akureyri en í Reykjavík.
Meðalárshiti
Ef við skorum meðalárshita fyrir hvert ár á tímabilinu 2010-2015 þá sjáum við enn á ný að það er hlýrra í Reykjavík að meðaltali yfir árið og meðaltals hitinn fyrir árið virðist haldast í hendur á báðum stöðum. Það er að segja, þegar það er hlýtt ár í Reykjavík, til dæmis 2014 og 2016, þá er oftast einnig hlýtt á Akureyri, og sömuleiðis þegar það er kalt í Reykjavík þá er kalt fyrir norðan, til dæmis árin 2023 og 2024.
Tuttugu gráðu dagar eða tuttugu gráður á pallinum
En meðaltal segir ekki alla söguna. Þegar við skoðum hlýju dagana — daga þar sem hitastigið náði 20°C eða meira — kemur í ljós gríðarlegur munur. Akureyri hefur næstum sex sinnum fleiri daga með tuttugu gráðu hita en Reykjavík! Þetta styrkir enn á ný þá kenningu að sumrin séu hlýrri fyrir norðan.
Oft sýna hitamælar á pöllum við hús eða sumarbústaði að hitinn sé yfir tuttugu gráður og því gæti mörgum þótt þessar tölur ansi lágar. Opinberar hitamælingar mæla lofthita við aðstæður þar sem sólin skýn aldrei beint á mælinn sem gerir það að verkum að opinberar tölur eru yfirleitt lægri en þær sem hitamælirinn á pallinum sýnir. Þess vegna gæti fjöldi daga yfir 20°C í Reykjavík virst lægri en fólk upplifir.
Aftur á móti þá er það augljóst mál að ef fólk vill upplifa tuttugu gráður eða meira á Íslandi þá er töluvert líklegra að gera það á Akureyri heldur en í Reykjavík!
Frostdagar (frostnætur)
Á hinn bóginn greiðist kalt í kringum veturinn á Akureyri. Á Akureyri eru um 33% fleiri dagar þars sem hitastigið fer undir núll gráður held en Reykjavík á tímabilinu. Hér er vert að benda á að kaldasti hluti sólarhringsins er jafnan á nóttunni svo hér er réttara að tala um frostnætur heldur en frostdaga, því hitinn getur farið yfir frostmark um daginn þó að hann sé undir frostmarki á nóttunni.
Veturinn á Norðurlandi eru kaldari en fyrir sunnan — og það kemur skýrt fram í tölunum.
Við getum líka skoðað hlutfall daga þar sem hámarkshiti dagsins náði yfir ákveðin mörk. Hér sést að dagar þar sem hitinn nær fimmtán gráðum eru algengari fyrir norðan, en tíu stiga hiti virðist álíka algengur á báðum stöðum.
Vindur
Hér koma niðurstöðurnar kannski ekki á óvart. Reykjavík er fræg fyrir hvassviðrið og tölurnar staðfesta það. Vetrarmánuðirnir eru töluvert hvassari í Reykjavík heldur en á Akureyri og þó svo að það lægi töluvert í Reykjavík á sumrin þá er meðalvindurinn lægri á Akureyri fyrir alla mánuði ársins.
Meðalvindur segir ekki alla söguna — við skulum skoða fjölda daga þar sem vindur fór upp í 10 m/s eða meira.
Reykjavík hefur næstum þrisvar sinnum fleiri daga þar sem vindurinn nær 10 m/s eða meir heldur en Akureyri. Reykjavík er greinilega vindasamari borgin.
10 m/s viðmiðið gæti litið út sem handvalið. Við skulum skoða fleiri viðmið til að staðfesta mynstrið.
Úrkoma
Reykjavík er þekkt fyrir rigningu, og það er vel á rökum reist. Reykjavík fær um 30% meiri ársúrkomu en Akureyri. Þetta endurspeglar staðsetningu höfuðborgarinnar á suðvesturhorni landsins, beint í leið lægðanna sem reka inn af Atlantshafi.
Við skulum skoða meðalúrkomu eftir mánuðum nánar.
Hvað með fjölda daga með úrkomu? Reykjavík er þekkt fyrir skyndilegar veðrabreytingar — sól annan daginn og rigning þann næsta — svo það væri áhugavert að sjá hvort fleiri úrkomudagar séu í Reykjavík en á Akureyri.
Við skulum einnig skoða þetta ár fyrir ár.
Í Reykjavík rignir að meðaltali meira en annan hvern dag — um 62% daga ársins. Á Akureyri er þetta hlutfall lægra, um 53%, en samt smá segja að það rigni annan hvern dag á Akureyri. Það er þó enginn vafi á því að það rigni meira í Reykajvík: ársúrkoman er meiri í Reykjavík og það eru einnig fleiri rigningardagar í Reykjavík.
Sólskin
Meðalsólskinsstundir eftir mánuðum
Þetta er kannski sú tala sem kemur flestum mest á óvart. Reykjavík hefur um 27% fleiri sólskinsstundir en Akureyri á ári. Þó að Akureyri fái færri rigningardaga og minni úrkomu, þá mælast fleiri sólskinsstundir í Reykjavík heldur en á Akureyri.
Meðalárssólskinsstundir
Dagar án sólar
Við skulum skoða fjölda daga þar sem ekkert sólskin mælist í báðum borgum.
Veturnir eru dimmir á báðum stöðum en þó er töluvert meiri sól á veturna í Reykjavík heldur en norður á Akureyri. Þetta getur sennilega að einhverju leiti útskýrts af hvernig sólskinsstundirnar eru mældar. Sólskin mælist ef sólarljósið sem skín á mælinn er nægilega mikið til að varpa skugga. Það getur því einfaldlega verið að í desember og janúar þá nær sólinn ekki upp fyrir fjöllin í Eyjafirði sem gerir það að verkum að ekkert sólskin mælist, þó svo að himininn er heiðskýr og ekki ský á himni.
Niðurstaða
Samanburðurinn kom mér að einhverju leiti á óvart en staðfestir einnig það að á Akureyri eru fleiri dagar með tuttu gráðum heldur en í Reykjavík.
Það sem kom mér mest á óvart er að fjöldi sólskinsstunda er töluvert fleiri í Reykjavík heldur en á Akureyri og það kom mér líka á óvart að sjá hvað meðalhitinn er svipaður á báðum stöðum yfir sumarið. Meðaltalið á Akureyri er aðeins hærra á sumrin en í Reykjavík en munurinn er langt frá því að vera jafn stór og ég hélt hann væri.
Hins vegar þá staðfesta tölurnar að það bæði rignir og blæs minna á Akureyri heldur en í Reykjavík, svo það er kannski þess vegna sem fólk talar um að það sé alltaf gott veður á Akureyri? Ég skal ekki segja til um það en ég skil í það minnsta þau sem tala um sífellda rigningu og rok fyrir sunnan.